Vörumynd

Nýja tilvitnanabókin

Nýja tilvitnanabókin inniheldur á fimmta þúsund tilvitnanir víða að úr heiminum og frá umliðnum 3000 árum – frá Grikkjum fornaldar til stjarnanna í dægurheimi samtímans.

Tilvitnanirnar eru af ýmsum toga – úr ræðum og ritum, íslenskum og erlendum bókmenntum, popplögum og Íslendingasögunum, svo nokkuð sé nefnt. Þeim er raðað upp í aðgengilega efnisflokka sem auðvelda lesandanum að finna tilvit…

Nýja tilvitnanabókin inniheldur á fimmta þúsund tilvitnanir víða að úr heiminum og frá umliðnum 3000 árum – frá Grikkjum fornaldar til stjarnanna í dægurheimi samtímans.

Tilvitnanirnar eru af ýmsum toga – úr ræðum og ritum, íslenskum og erlendum bókmenntum, popplögum og Íslendingasögunum, svo nokkuð sé nefnt. Þeim er raðað upp í aðgengilega efnisflokka sem auðvelda lesandanum að finna tilvitnun fyrir sérhvert tilefni.

Í snjallyrðunum er fólgin lífsspeki aldanna, jafnt sem kaldhæðni nútímans; í stuttri setningu býr oft meiri viska, hvassari ádeila eða dýpri mannúð en í langri ræðu.

Nýja tilvitnanabókin er handhægt uppflettirit sem gott er að grípa til við öll tækifæri. Bókin hefur nú mjög verið aukin og endurbætt – því ekkert lát er á frumlegri og skapandi hugsun í veröldinni. Kolbrún Bergþórsdóttir safnaði spakyrðunum.

Nýja tilvitnanabókin er 409 blaðsíður að lengd. Jón Ásgeir hannaði kápu, Eyjólfur Jónsson hannaði innsíður og braut um. Bókin er prentuð í Finnlandi.

Verslaðu hér

  • Bjartur og Veröld
    Bjartur og Veröld ehf - bókaforlag 414 1450 Vesturvör 30b, 200 Kópavogi

Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um breytingar og villur. Upplýsingar á síðu söluaðila gilda.

Já notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Já uppfært persónuverndarstefnu sína. Nánar um stefnuna og vefkökur hér.
Samþykkt