Vörumynd

Tapað fundið

Lögfræðingurinn Halla Bryndís fær í hendurnar ranga ferðatösku þegar hún lendir í London og mikilvægir fundir framundan. Hvað gerir kona sem situr uppi með allt annan fataskáp en sinn eigin? Samhliða því sem við fylgjumst með Höllu Bryndísi leita út fyrir þægindaramma sinn með ófyrirsjáanlegum afleiðingum er skyggnst inn í dramatískt líf eiganda ferðatöskunnar.

Grípandi og spennandi saga af …

Grípandi og spennandi saga af tveimur ólíkum konum og leit þeirra að lífsfyllingu og hamingju.

Tapað–fundið er fyrsta skáldsaga Árelíu Eydísar Guðmundsdóttur en áður hafa komið út eftir hana fræðibækur af ýmsu tagi.

Tapað-fundið er 220 blaðsíður að lengd. Jón Ásgeir hannaði bókarkápuna og Eyjólfur Jónsson sá um umbrot. Bókin er prentuð í Odda.

Verslaðu hér

  • Bjartur og Veröld
    Bjartur og Veröld ehf - bókaforlag 414 1450 Vesturvör 30b, 200 Kópavogi

Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um breytingar og villur. Upplýsingar á síðu söluaðila gilda.