Vörumynd

Leitin að svarta víkingnum

Bergsveinn Birgisson

Einn leyndardómur íslenskra fornsagna eru örstutt brot um „svartleitan“ mann sem þar bregður fyrir – Geirmund heljarskinn. Hann er sagður dökkur og ljótur, með mongólska andlitsdrætti af konunglegum uppruna, sagður „göfgastur landnámsmanna“ og ríður um sveitir Íslands með áttatíu vígamenn, og á mörg stórbú þar sem hann heldur mörg hundruð þræla.
En hver var Geirmundur heljarskinn? Af hverju …

Einn leyndardómur íslenskra fornsagna eru örstutt brot um „svartleitan“ mann sem þar bregður fyrir – Geirmund heljarskinn. Hann er sagður dökkur og ljótur, með mongólska andlitsdrætti af konunglegum uppruna, sagður „göfgastur landnámsmanna“ og ríður um sveitir Íslands með áttatíu vígamenn, og á mörg stórbú þar sem hann heldur mörg hundruð þræla.
En hver var Geirmundur heljarskinn? Af hverju er engin saga varðveitt af honum og af hverju hefur hann nánast fallið í gleymsku?

Hér tekur Bergsveinn Birgisson lesandann með sér í heillandi ferðalag um forna tíma og fjarlæg lönd – en einnig á slóðir Geirmundar við Breiðafjörð og á Vestfjörðum. Með því að rýna í skjöl, fornleifar og nýta nýjustu tækni kviknar fortíðin til lífs og púslin raðast saman í spennandi frásögn, sem er skrifuð af þekkingu, skáldlegum innblæstri og stílgáfu. Fyrsta útgáfa af Leitinni að svarta víkingnum kom út á norsku og hlaut frábærar viðtökur.

Bergsveinn er doktor í norrænum fræðum og var tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir Svar við bréfi Helgu .

„eitt mesta verk 2016 vertíðarinnar … spennandi og jafnvel æsileg á köflum … það er ansi dýrmætt að fá að kafa með Bergsveini í þessa fortíð alla … Þessi bók er veisla.“ Hallgrímur Helgason, Stundin.is

Verslaðu hér

  • Bjartur og Veröld
    Bjartur og Veröld ehf - bókaforlag 414 1450 Vesturvör 30b, 200 Kópavogi

Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um breytingar og villur. Upplýsingar á síðu söluaðila gilda.

Já notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Já uppfært persónuverndarstefnu sína. Nánar um stefnuna og vefkökur hér.
Samþykkt