HLUTVERK OG STEFNA WORLD CLASS
Efla líkamlegt atgervi hjá viðskiptavinum og lækka kostnað heilbrigðisþjónustunnar.
FRAMTÍÐARSÝN
Vera leiðandi fyrirtæki á heilsuræktarmarkaði á Íslandi.
Við stefnum að eftirfarandi markmiðum:
- Vera í forystuhlutverki í rekstri og þróun líkamsræktarstöðva
- Veita framúrskarandi og faglega þjónustu
- Hafa yfir að ráða hæfu og metnaðarfullu starfsfólki
- Skila arðbærum rekstri
- Efla tengingu okkar við heilbrigðis- og menntakerfið
Gildi World Class
- Þjónusta: Við viljum vera þekkt fyrir framúrskarandi þjónustu og leitum stöðugt nýrra tækifæra til að bæta þjónustu.
- Samstarf: Við vinnum saman og finnum lausnir. Samskipti okkar einkennast af jákvæðni, heiðarleika, trausti og virðingu. Við tökum ábyrgð á því sem við erum að gera og viðurkennum mistök okkar.
- Þekking: Við vitum hvaða þekkingar er þörf í okkar starfi til að sinna því vel. Við leitum sífellt leiða til að auka þekkingu okkar og miðlum henni okkar á milli.