LIND er hágæða vatnslitapensillinn okkar, þróaður með áherslu á framúrskarandi eiginleika, vönduð efni og fallega hönnun. Pensillinn er framleiddur fyrir okkur í Þýskalandi af reyndum penslaframleiðanda.
Pensilhárin eru gerð úr sérvalinni blöndu af fíngerðum gervitrefjum sem líkja eftir bestu eiginleikum náttúruhára. Samsetning trefjanna gerir penslinum kleift að taka í sig mikið mag…
LIND er hágæða vatnslitapensillinn okkar, þróaður með áherslu á framúrskarandi eiginleika, vönduð efni og fallega hönnun. Pensillinn er framleiddur fyrir okkur í Þýskalandi af reyndum penslaframleiðanda.
Pensilhárin eru gerð úr sérvalinni blöndu af fíngerðum gervitrefjum sem líkja eftir bestu eiginleikum náttúruhára. Samsetning trefjanna gerir penslinum kleift að taka í sig mikið magn af vatni og lit og skila honum jafnt og mjúklega á pappírinn.
Hárin eru mjúk en hafa um leið góða fjöðrun og halda lögun sinni vel. Fínn oddurinn veitir mikla stjórn og gerir LIND einstaklega fjölhæfan – allt frá mjúkum, vatnsmiklum pensilstrokum og blautt í blautt yfir í fínar línur og nákvæm smáatriði.
LIND var búinn til fyrir okkur með það að markmiði að bjóða upp á virkilega góðan vatnslitapensil á sanngjörnu verði, án þess að gera málamiðlanir þegar kemur að gæðum.
Eiginleikar
Hágæða vegan gervitrefjar
Mikil vatns- og litaupptaka
Mjúkt og jafnt litaflæði
Fínn og nákvæmur oddur
Góð fjöðrun og lögunarheldni
Hentar bæði fyrir stórar pensilstrokur og fín smáatriði
Framleiddur fyrir okkur í Þýskalandi
LIND – okkar eigin lína
Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um breytingar og villur. Upplýsingar á síðu söluaðila gilda.