Vörumynd

Húðslípun

Húðfegrun

Húðslípun er mjög áhrifarík og örugg húðmeðferð. Meðferðin fjarlægir dauðar húðfrumur af ysta lagi húðar og örvar vöxt frumna og bandvefs í undirlagi húðarinnar.

Það sem gerir Húðslípun einstaka er tæknin sem tryggir örugga og árangursríka hreinsun á ysta lagi húðarinnar. Meðferðin fjarlægir stíflur, óhreinindi og húðfitu sem er föst í svitaholum og fínum línum. Eftir meðfer…

Húðslípun er mjög áhrifarík og örugg húðmeðferð. Meðferðin fjarlægir dauðar húðfrumur af ysta lagi húðar og örvar vöxt frumna og bandvefs í undirlagi húðarinnar.

Það sem gerir Húðslípun einstaka er tæknin sem tryggir örugga og árangursríka hreinsun á ysta lagi húðarinnar. Meðferðin fjarlægir stíflur, óhreinindi og húðfitu sem er föst í svitaholum og fínum línum. Eftir meðferð verður húðin móttækilegri fyrir virkum efnum í kremum sem borin eru á andlitið. Þessi einstaka húðmeðferð hjálpar þinni húð að vera besta útgáfan af sjálfri sér.

  • Gerir áferð húðarinnar fallegri
  • Vinnur burt unglingabólur
  • Dregur úr línum og hrukkum
  • Hreinsar óhreina húð
  • Þéttir opnar svitaholur

Framkvæmd meðferðar: Silk Peel húðslípunartæki er notað í meðferðinni og er hún framkvæmd með þeim hætti að ysta lag húðarinnar er fjarlægt með notkun örsmárra kristalla og demanta.

Fjöldi meðferða: Til að fríska upp á þreytta húð næst góður árangur eftir staka meðferð. Til að vinna á óhreinindum eða öðrum húðvandamálum er hins vegar mælt með að teknar séu 3-6 meðferðir með 1-2 vikna millibili til að ná sem bestum árangri. Sé húð mjög óhrein og/eða örótt er mælt með að taka að lágmarki 6 meðferðir með 3 vikna millibili til að ná sem bestum árangri.

ATH! Ef keypt eru gjafabréf eða meðferðir fyrir aðra en greiðanda, skal vinsamlegast taka það fram við greiðslu.

Verslaðu hér

  • Húðfegrun
    Húðfegrun ehf 533 1320 Vegmúla 2, 108 Reykjavík

Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um breytingar og villur. Upplýsingar á síðu söluaðila gilda.

Já notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Já uppfært persónuverndarstefnu sína. Nánar um stefnuna og vefkökur hér.
Samþykkt